Vegir víðast hvar greiðfærir

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Greiðfært er á öllum aðalleiðum landsins samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en þó eru hálkublettir á Kleifaheiði og í Árneshreppi. Þoka er á Fróðárheiði og Hálfdáni.

Vegir sem ekki eru í vetrarþjónustu eru sumir hverjir orðnir færir. Búið er að opna veginn yfir Öxi en þar eru hálkublettir. Vegir sem enn eru lokaðir eða ófærir eru t.d. Nesjavallaleið og eins bæði Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert