Meðvitundarlaus í sundlaug á Hellu

Konan komst fljótlega til meðvitundar.
Konan komst fljótlega til meðvitundar. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst nú klukkan 13.48 í dag beiðni um þyrlu vegna konu sem fundist hafði meðvitundarlaus í sundlauginni á Hellu.

Konan komst fljótlega til meðvitundar en hins vegar var það mat læknis á staðnum og læknis í áhöfn þyrlunnar að sækja konuna og flytja hana til Reykjavíkur.

Fór þyrlan TF-LIF í loftið um stundarfjórðungi yfir tvö og lenti á Hellu tæplega 25 mínútum síðar. Gekk vel að koma sjúklingnum um borð. Áætlar þyrlan að lenda við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi rétt rúmlega þrjú.

Uppfært klukkan 15:47

Konan er íslensk og á sextugsaldri. Starfsmenn sundlaugarinnar brugðust hárrétt við aðstæðunum sem komu upp í lauginni samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert