Þekkja ekki þjóðerni sjöunda hvers ferðamanns

Ferðamaður tekur mynd við Geysi.
Ferðamaður tekur mynd við Geysi. mbl.is/Ómar

Af tæpri milljón ferðamanna sem heimsóttu Ísland í fyrra er þjóðerni 142 þúsund ferðamanna ekki þekkt. Frá þessu greinir Túristi.is en þar segir einnig að Ferðamálastofa hafi margsinnis beðið um að úr þessu væri bætt en að Isavia óttist hinsvegar aukin biðtíma í vopnaleit.

Við vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þurfa allir farþegar að sýna vegabréf og þannig er hægt að skrá hverrar þjóðar farþegarnir eru. Tölurnar eru síðan sendar áfram til Ferðamálastofu sem heldur utan um upplýsingar um hversu margir ferðamenn fara frá landinu í hverjum mánuði og hvaðan þeir koma.Erlendir farþegar eru flokkaðir eftir 17 þjóðernum og á listanum eru aðeins tvö Asíulönd en ekkert land frá S-Ameríku, Afríku eða Eyjaálfu er þar að finna. Einu fulltrúar Austur-Evrópu á listanum eru Pólland og Rússland. Farþegar sem eru frá öðrum löndum en þeim 17 sem talin eru fara því í flokkinn „aðrir“ og í fyrra lentu um 142 þúsund manns í þeim hópi.

Samtök ferðaþjónustunnar taka undir kröfu Ferðamálastofu um bætta talningu samkvæmt frétt Túrista. „Það er ákaflega mikilvægt fyrir þá sem starfa í ferðaþjónustu að þekkja viðskiptavininn sem best, þ.e. þá ferðamenn sem sækja Ísland heim. Það er auðvitað eðlileg krafa að flokkunin á Keflavíkurflugvelli sé nákvæmari og hægt sé að fá betri greiningu á þjóðerni þeirra ferðamanna sem koma til landsins", segir í svari Skapta Arnar Ólafssonar, upplýsingafulltrúa SAF til Túrista.

Hann segir að samtökin hafi lengi barist fyrir betri tölfræðiupplýsingum um þessa ört vaxandi atvinnugrein og því beri að fagna að Ferðamálastofa óski eftir frekari greiningu á hópi ferðamanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert