Lýst eftir Birgittu Sif

Birgitta Sif Gunnarsdóttir
Birgitta Sif Gunnarsdóttir

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Birgittu Sif Gunnarsdóttur, 17 ára til heimilis í Reykjanesbæ. Síðast er vitað um ferðir Birgittu í Reykjanesbæ, föstudaginn 24.apríl. Ekki er vitað hvar Birgitta heldur til.

Birgitta Sif er þéttvaxinn, 160 sm á hæð ca 80 kg, með sítt dökkbrúnt hár niður á axlir. Hún er klædd í svarta úlpu og græna Converse skó. Nánari upplýsingar um klæðnað liggja ekki fyrir.

Þeir sem verða varir við Birgittu Sif eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2299

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert