Réðst á konu við Suðurgötu

Konan var á gangi eftir Suðurgötu í Reykjavík þegar maðurinn …
Konan var á gangi eftir Suðurgötu í Reykjavík þegar maðurinn réðst á hana. Júlíus Sigurjónsson

Ráðist var á unga konu sem var á göngu við Suðurgötu í Reykjavík um klukkan ellefu í gærkvöldi. Ungur maður sem hljóp framhjá konunni slær hana í andlitið og hleypur burt. Konan komst heim til sín og kallaði eftir aðstoð lögreglu.

Þá hafði lögregla afskipti af ungri konu í leigubifreið í Austurborginni um klukkan fjögur í nótt þar sem hún var ofurölvi og ósjálfbjarga. Konan var vistuð í fangageymslu meðan ástand hennar lagast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert