Lýst eftir Ásdísi Fríðu

Ásdís Fríða Guðmundsdóttir
Ásdís Fríða Guðmundsdóttir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ásdísi Fríðu Guðmundsdóttur, 49 ára. Talið er að hún sé meðal annars klædd í bláa síða Cintamani úlpu. Ásdís, sem er grannvaxinn og 170 sm á hæð, er með stutt, axlasítt ljóst hár.

Síðast er vitað um ferðir hennar á heimili hennar seinnipart sl. fimmtudags.  Ekki er vitað að Ásdís hafi aðgang að neinu ökutæki. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ásdísar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Uppfært 28. apríl kl. 13.41: 

Ásdís Fríða er komin fram. Lögregla þakkar veitta aðstoð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert