17 ára ók á 150 km hraða

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært 28 ökumenn fyrir of hraðan akstur í umdæminu á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 150 km hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.

Þar var á ferðinni sautján ára piltur sem var með rúmlega tveggja mánaða gamalt ökuskírteini. Haft var samband við forráðamenn og þeim tilkynnt um málið.

Annar ökumaður, sem ók of hratt var með tveggja ára barn í barnabílstól í aftursætinu, en öryggisbelti hans var ekki spennt.

Fleiri ökumenn urðu uppvísir að því að brjóta umferðarlög, svo sem með því að sinna ekki stöðvunarskyldu og tala í síma án tilskilins búnaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert