Forseti Alþingis í Lettlandi

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, leggur blómsveig að minnismerki um …
Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, leggur blómsveig að minnismerki um þá sem létu lífið í frelsisstríðinu 1918–20.

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, var sérstakur gestur á hátíðarfundi lettneska þingsins í gær. Hann var þar í boði Inöru Murniece, forseta Saema, þjóðþings Lettlands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá skrifstofu Alþingis.

Þess var minnst að aldarfjórðungur er liðinn frá því að Lettland endurheimti sjálfstæði sitt eftir áratuga hernám Sovétríkjanna. Forseti Alþingis flutti ávarp og færði lettneska þinginu kveðju Alþingis við þetta tækifæri. Jafnframt lagði hann blómsveig að minnismerki um þá sem létu lífið í frelsisstríðinu 1918–1920.

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, forsætisráðherra Lettlands, Laimdota Straujuma, og …
Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, forsætisráðherra Lettlands, Laimdota Straujuma, og forseti Lettlands, Andris Berzins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert