Harður árekstur varð á Bústaðavegi á sjötta tímanum í dag þegar bifreið keyrði aftan á aðra. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu urðu ekki alvarleg slys á fólki og ekki þurfti að flytja fólk á sjúkrahús.
Að sögn varðstjóra eru bifreiðirnar mikið skemmdar eftir áreksturinn enda var höggið mikið. Líknarbelgir beggja bifreiða sprungu við höggið.