Vélarvana við Hópsnes

Frá strandstað við Hópsnes á Reykjanesi.
Frá strandstað við Hópsnes á Reykjanesi. Ljósmynd/Smábátar í 100 ár

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst nú kl. 12:23 neyðarkall frá bátnum Gottlieb 2622 sem var vélarvana við Hópsnes á Reykjanesi. Rak bátinn hratt að landi. Fjórir skipverjar voru um borð.

Þegar í stað var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út sem og björgunarsveitir á Suðurnesjum og björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Skömmu eftir að útkallið barst var báturinn kominn upp í kletta og lagðist þar á hliðina. Nærstaddir bátar á svæðinu komust ekki að til aðstoðar, segir í frétt frá Landhelgisgæslunni.

Strekkingsvindur var á svæðinu, SA 10-12 m/s og aðstæður á staðnum erfiðar.

Skipverjar, sem voru allir í björgunargöllum náðu að koma taug í land og kl. 12:51 barst staðfesting um að þeir væru allir komnir upp í fjöru heilir á húfi.

Um hálftíma eftir að útkallið barst lenti þyrla Landhelgisgæslunnar í fjörukambinum og mun hún flytja skipverjana til Grindavíkur.

Uppfært kl. 13.42

Áhöfnin er nokkuð vel á sig komin miðað við aðstæður. Mennirnir fjórir eru allir í skýrslutöku.

Uppfært kl. 14.08

Reynt verður að ná bátnum á flot fljótlega. Ekki er enn vitað af hverju bátinn rak að landi en grunur leikur á að um vélarbilun hafi verið að ræða.  

Ekki hefur náðst í lögreglu á Suðurnesjum vegna málsins. 

Báturinn Gottlieb 2622 varð vélarvana við Hópsnes á Reykjanesi.
Báturinn Gottlieb 2622 varð vélarvana við Hópsnes á Reykjanesi. Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert