Ók á 130 km hraða

mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært tólf ökumenn fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 130 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Einn ökumannanna tólf hafði ekki ökuskírteini meðferðis og annar ók sviptur ökuréttindum.

Þá voru sextán ökumenn sektaðir fyrir að leggja ólöglega og nokkrir til viðbótar fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu eða aka án þess að hafa öryggisbeltin spennt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert