Að ætla manni að sitja í gæsluvarðhaldsklefa á Skólavörðustíg þann tíma sem réttarhöldin standa ekki yfir á fimm vikna tímabili er ekki boðlegt að mati Gests Jónssonar, verjanda Sigurðar Einarssonar fv. stjórnarformanns Kaupþings. Það sé ekki raunverulegur kostur, fullfrískir menn eigi nóg með að sitja réttarhöldin.
mbl.is ræddi við Gest í Héraðsdómi í dag sem segir yfirvöld fangelsismála vera að brjóta grundvallarréttindi sakborninga í réttarríkinu.