Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra tók í gær við HeForShe verðlaunum UN Women en þau eru veitt því landi sem stendur sig best í að fá karla og drengi til liðs við jafnréttisbaráttuna.
Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu hefur næstum einn af hverjum tólf íslenskra karlmanna á aldrinum 15-64 ára gengið til liðs við hina alþjóðlegu HeforShe herferð og talaði Khetsiwe Dlamini hjá UN Women um hversu gott fordæmi slíkt væri fyrir önnur lönd í heiminum.
Nefndi hún sérstaklega hversu hrifin hún væri af átaki Íslensku Landsnefndar UN Women og hvatti hún alla íslenska karlmenn til að ganga til liðs við HeforShe á heforshe.is
Fyrri fréttir mbl.is:
Íslenskir karlmenn vöktu heimsathygli
Finna fyrir meðbyr frá karlmönnum
Íslenskir karlmenn skara fram úr