Rúntuðu saman án bílprófs

mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Selfossi hafði í gærkvöldi afskipti af tveimur sextán ára gömlum piltum sem rúntuðu saman um bæinn án þess að vera komnir með bílpróf. Drengirnir sögðust vera saman í æfingaakstri. Haft var samband við foreldra piltanna sem sóttu þá.

Þá var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna í austurborginni í nótt. Hann var látinn laus að lokinni blóðtöku að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert