Ríkisendurskoðun telur að velferðarráðuneytið þurfi að efla forystu- og yfirstjórnarhlutverk sitt á sviði barnaverndarmála. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um stöðu barnaverndarmála hér á landi en ábyrgð á þeim er bæði á hendi ríkis og sveitarfélaga.
Í skýrslunni kemur fram að tryggja verði að tilteknir hópar barna, sem glíma við alvarlegan og fjölþættan vanda, fái þjónustu við hæfi. Þá þurfi að mæta þörf einstakra barnaverndarnefnda fyrir aðstoð við úrlausn mála. Að mati Ríkisendurskoðunar eru samskipti Barnaverndarstofu og barnaverndarnefnda almennt góð. Fagleg samstaða ríkir innan málaflokksins um áherslur í barnaverndarstarfi og bið eftir þjónustu hefur styst á undanförnum árum.
Ríkisendurskoðun er hins vegar gagnrýnin á yfirstjórn ráðuneytisins og telur hana veika. „Það hafi til þessa ekki sinnt sem skyldi því hlutverki sínu að móta stefnu í málaflokknum. Samkvæmt lögum ber ráðuneytinu að móta framkvæmdaáætlun í barnavernd til fjögurra ára í senn. Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytið þurfi að vanda betur vinnulag við gerð og framlagningu þessarar áætlunar svo hún þjóni tilgangi sínum. Í þeirri vinnu eigi ráðuneytið að hafa víðtækt samráð við Barnaverndarstofu, sveitarfélög og aðra hlutaðeigandi aðila. Almennt hvetur Ríkisendurskoðun ráðuneytið til að efla samskipti sín við barnaverndaryfirvöld og hafa forgöngu um lausn vandamála ef og þegar þau koma upp,“ segir í skýrslunni.