Þrír með annan vinning í EuroJackpot

Enginn var með allar tölurnar réttar í EuroJackpot-lottóinu í kvöld. Þrír voru hins vegar með annan vinning og fær hver þeirra rúmar 58 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Spáni og Danmörku.

Tveir skiptu þriðja vinningi á milli sín og fær hvor rétt tæpa 31 milljón. Annar miðanna var keyptur í Svíþjóð en hinn í Þýskalandi. 

Einn var með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fær hann fyrir það hundrað þúsund krónur. Miðinn var keyptur í Holtanesti við Melabraut í Hafnarfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert