Útskrifast af spítalanum á morgun

Erlendum ferðamanni, sem var fluttur á Landspítalann í dag eftir köfunarslys í Silfru á Þingvöllum, líður vel. Hann er á batavegi og verður útskrifaður af spítalanum í fyrramálið, að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans.

Maðurinn var fluttur með þyrlu á spítalann á öðrum tímanum í dag. Hann var með meðvitund þegar fyrsta neyðaraðstoð barst.

Frétt mbl.is: Útkall vegna köfunarslyss í Silfru

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert