Með eggvopn á skemmtistað

mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í nótt klukkan 01:48 á skemmtistað í Breiðholti. Var henni tilkynnt að þar væri maður með eggvopn.

Að sögn lögreglunnar var viðkomandi handtekinn á vettvangi og færður í fangageymslu þar sem hann gisti í nótt. Verður hann svo yfirheyrður síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert