Manninum sem lenti í bifhjólaslysinu í Hvítársíðu í Borgarfirði í dag er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu á Landspítalanum í Fossvogi. Maðurinn, ásamt konu sem var farþegi á hjólinu, fór út af veginum með fyrrnefndum afleiðingum.
Samkvæmt upplýsingum frá lækni kom konan ekki á gjörgæslu, en hún var flutt með þyrlunni á slysadeild í Reykjavík. Lögreglan í Borgarnesi sagði meiðsl hennar hafa verið minniháttar.
Frétt mbl.is: Alvarlegt slys í Borgarfirði