Hluti aksturs strætisvagna Strætó á höfuðborgarsvæðinu er nú í útboði, eða um 40% akstursins. Núgildandi samningur rennur út í lok ágúst á næsta ári.
Sá samningur var gerður til fjögurra ára og var hann framlengdur í tvígang til árs í senn.
Ferli útboðs á borð við það sem auglýst var nú um helgina er langt, enda margþætt og þungt í vöfum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.