Isavia með flugumferðarstjórn á Grænlandi

Flugumferðarstjórar að störfum á Reykjavíkurflugvelli.
Flugumferðarstjórar að störfum á Reykjavíkurflugvelli.

Isavia hefur tekið við flugumferðarstjórn á flugvellinum Kangerlussuaq (Syðri-Straumfirði), vestan megin á Grænlandi (67. gráðu norður).

Mittarfeqarfiit, sem rekur flugvellina á Grænlandi óskaði eftir því við Isavia að fyrirtækið tæki við stjórn flugumferðar á flugvellinum. Kangerlussuaq er eini flugvöllurinn á Grænlandi með reglubundið flug á þotum til Danmerkur og jafnframt eini flugvöllurinn sem er með flugumferðarstjórn. Hinir ellefu flugvellirnir á Grænlandi eru með tiltölulega stuttar flugbrautir og þar er ekki flugumferðarstjórn heldur er veitt flugupplýsingaþjónusta, samkvæmt fréttatilkynningu.

Isavia hefur komið upp flugstjórnarhermi sem notaður er til þjálfunar flugumferðarstjóra og nú stendur yfir þjálfun íslensku flugumferðarstjóranna sem koma til með að vinna í flugturninum í Kangerlussuaq. Fyrst um sinn munu fjórir flugumferðarstjórar sinna þjónustunni en tveir bætast við í haust.

„Í Kangerlussuaq búa um 650 manns og flestir hafa atvinnu af flugvellinum eða tengdri starfsemi. Flugvöllurinn er mjög mikilvægur Grænlandi og nokkurs konar skiptistöð landsins. Þangað flýgur Air Greenland daglega frá Kaupmannahöfn á Airbus A330 þotu sem tekur 280 manns. Stuttu áður en þotan lendir koma Dash-8 vélar frá Nuuk, Illullisat og fleiri bæjum Grænlands með farþega sem ætla til Kaupmannahafnar og taka við farþegunum sem koma með þotunni,“ segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert