Tveir alvarlega slasaðir

Þrír voru fluttir með þyrlu Gæslunnar á Landspítalann í Reykjavík eftir bílveltu við Hellissand í morgun. Tveir eru alvarlega slasaðir. Sex voru í jeppa sem fór út af veginum og valt. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús í Reykjavík. 

Í bílnum voru erlendir ferðamenn.

Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi segir að umferðaróhöppum þar sem útlendingar koma við sögu hafi fjölgað mikið í vetur. Skýringin sé m.a. sú að þeir eru óvanir veðri og vegum landsins. Í vetur þurfti lögreglan m.a. að sinna þremur útköllum á Grjóthálsi, fjallvegi milli Þverárhlíðar og Norðurárdals þar sem erlendir ferðamenn höfðu fest sig í snjó. Sá vegur er ófær á veturna. 

Sex voru í jeppanum sem valt við Hellissand í morgun.
Sex voru í jeppanum sem valt við Hellissand í morgun. mbl.is/Alfons
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert