Enginn vilji til að leiðrétta laun

Hjúkrunarfræðingar á vakt.
Hjúkrunarfræðingar á vakt. mbl.is/Golli

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sleit í dag viðræðum við ríkið eftir fund hjá ríkissáttasemjara. Í tilkynningu frá félaginu segir að ljóst sé að lítill vilji sé hjá ríkinu til að semja. „Hvorki virðist vera vilji til þess að leiðrétta laun þeirra og gera þau sambærileg við laun annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna né að leiðrétta kynbundinn launamun.“

Þá sé ómögulegt að segja nokkuð til um það hvenær næsti samningafundur verði boðaður og því er áframhaldandi verkfall hjúkrunarfræðinga óumflýjanlegt, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert