Styggur hestur á Ölfusárbrú

Lögregla að störfum á Ölfusárbrú á Selfossi.
Lögregla að störfum á Ölfusárbrú á Selfossi. mbl.is/Guðmundur Karl

Rétt fyrir kl. 5 í morgun barst lögreglu á Suðurlandi tilkynning um hest á gangi yfir Ölfusárbrú og stefndi hann í vestur.

Þegar lögreglumenn komu á vettvang var þar um að ræða rauðstjörnóttan hest, á járnum og var hann mjög styggur. Hljóp hann inn Ártúnið, inn í Hellisskóg þar sem hann hvarf sjónum lögreglu og fannst ekki þrátt fyrir leit.

Ef hestamenn sakna hests er svarar til lýsingar er þeim ráðlagt að hefja leit sína í Hellisskógi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert