„Það er mjög spennandi að taka við þessu áhugaverða embætti,“ sagði Bryndís Hlöðversdóttir, nýr ríkissáttasemjari, þegar Magnús Pétursson forveri hennar afhenti henni formlega lyklavöld að karphúsinu í morgun.
Bryndís segir hið nýja starf leggjast vel í sig, og hún hlakki til að takast á við verkefnin. „Það getur verið skemmtilegt að koma inn í svolitla hringiðu og stundum þarf maður bara að demba sér í djúpu laugina. Ég hef fullt að lesa og hlakka bara til.“
Magnús kvaðst ánægður með eftirmann sinn og sagðist ganga sáttur frá borði. „Það er bara búið að vera gaman hér,“ sagði hann en bætti við að vissulega hafi verið mikið að gera síðasta hálfa árið. „Þetta gerist þegar aðalkjarasamningar eru gerðir; þá verður meira að gera en á öðrum tíma, en nú er hluti af þessu búinn farsællega. En þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið,“ sagði hann og bætti við að enn ætti eftir að semja við ýmsa aðila á almenna markaðnum og ósamið væri við allan opinbera markaðinn, bæði hjá ríki og sveitarfélögum.
Elísabet S. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri ríkissáttasemjara, og Magnús Jónsson, aðstoðarsáttasemjari, færðu Magnúsi og Bryndísi blóm við lyklaafhendinguna, en auk þess var Magnús kvaddur með gjöfum. „Ég sagði við Magnús um daginn að ég þyrfti að fara í upplestrarfrí því það er svo mikið af góðum bókum sem mig langar að lesa. Þá sagði hann: „Ég er að fara í upplestrarfrí!“ svo við færum honum tvær bækur,“ sagði Elísabet. Auk þess fannst samstarfsfólki hans vel við hæfi að gefa honum vöfflujárn í kveðjugjöf þar sem siður er hjá ríkissáttasemjara að bjóða upp á nýbakaðar vöfflur þegar kjarasamningur er í höfn. „Nú ert þú útskrifaður úr vöffluskólanum,“ sagði Elísabet.
Magnús sagði starfi sínu lausu í lok febrúarmánaðar, hann hafði gegnt embætti ríkissáttasemjara frá 2008 þegar hann var skipaður af þáverandi félagsmálaráðherra. Hann lætur af störfum sökum aldurs. Aðspurður segist Magnús engin sérstök ráð hafa handa eftirmanni sínum, en kveðst viss um að hún sé ljómandi vel undirbúin fyrir starfið. En hvað tekur við hjá þér? „Það er bara óvissan sem tekur við,“ segir hann og hlær. „En eins og Elísabet sagði er ég að fara í upplestarfrí.“
Bryndís segist hafa fengið hvatningu úr nokkrum áttum til að sækja um starfið eftir að Magnús sagði því lausu, sem gerði það að verkum að hún fór að velta því fyrir sér og ákvað að láta á það reyna. Hún sagði starfi sínu sem starfsmannastjóri á Landspítalanum lausu í kjölfarið, en þangað hafði hún verið ráðin til fimm ára. „Ég var bara búin með tæp tvö ár af þeim tíma svo ég var ekkert búin að hugsa mér sérstaklega til hreyfings en mér fannst þetta freistandi og áhugavert embætti. Það sameinar margt sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina,“ segir hún og heldur áfram:
„Ég hef komið að málefnum aðila vinnumarkaðarins með ýmsum hætti í gegnum tíðina svo mér fannst ég hafa góðan grunn til að sækjast eftir embættinu.“ Bryndís hefur komið víða við á ferli sínum, en hún var lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands árin 1992 til 1995. Þá settist hún á þing fyrir Alþýðubandalagið og síðar Samfylkinguna til ársins 2005 og tók þá við sem deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Árið 2006 varð hún einnig aðstoðarrektor og á árunum 2011-2013 var hún rektor skólans. Frá árinu 2013 hefur hún svo starfað á Landspítalanum. Á þessum tíma hefur Bryndís setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og var frá 2010-2013 varamaður í Félagsdómi.
En hver eru fyrstu mál á dagskrá hjá nýjum ríkissáttasemjara? „Mér heyrist að það sé að fá mér kaffi,“ segir Bryndís og hlær. „En ég tek við á þeim stað sem Magnús skilur við. Hér er allt í mjög föstum skorðum og það er mjög aðgengilegt fyrir mig að koma að þeim málum. Hér hefur verið haldið mjög vel utan um að það sé allt í röð og reglu og maður geti gengið að ákveðnum gögnum um mál, sem er gríðarlega mikilvægt.“
Bryndís sat sem áheyrnarfulltrúi á samningafundum í liðinni viku á þeim tíma þegar samningar voru að nást við Samtök atvinnulífsins. Engir samningar náðust þó á milli BHM og Félags hjúkrunarfræðinga og ríkisins og segist Bryndís því munu heyra í samninganefndunum í dag og taka púlsinn á verkefnum. „Ef tilefni gefst mun ég boða til fundar. Magnús mat það svo um helgina að svo væri ekki en vonandi kemur það.“
Þá er stafli af möppum á borði hennar sem bíða lestrar. „Það er nóg að lesa og ég hlakka bara til,“ segir hún. Aðeins fimm dagar eru síðan Bryndís fékk að vita af ákvörðun ráðherra að skipa hana ríkissáttasemjara. Hún segist því enn eftir að hnýta nokkra lausa enda á sínum fyrri vinnustað en hún hafi þó náð að undirbúa sig nokkuð vel andlega og sé tilbúin í hið nýja starf.