Töluðu við eiganda íbúðarinnar

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. mbl.is/Eva Björk

Eigandi íbúðar í fjölbýlishúsi við Hlíðarhjalla í Kópavogi, sem lögreglan girti af í dag eftir að tilkynningar bárust um skothvelli frá henni, hefur ekki verið í henni að undanförnu að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Mbl.is hefur fengið staðfest að lögreglan hafi náð sambandi við eigandann í kvöld en hann var þá ekki í íbúðinni. Lögreglan fór inn í íbúðina í kvöld og kom þá í ljós að hún var mannlaus. Hins vegar fundust þar bæði skotvopn og skotfæri.

Lögregla mun halda áfram rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert