Fjögur trampólín fuku af stað á Akureyri í dag að sögn lögreglunnar en mjög hvasst hefur verið í bænum. Var haft samband við lögregluna vegna þess og tók hún að sér að koma þeim þannig fyrir að ekki skapaðist hætta af þeim.
Eitt af trampólínunum lenti á bifreið og olli nokkrum skemmdum á henni og annað fauk á hús með sömu afleiðingum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.