Hópsöfnun kvikmyndahússins Bíó Paradís lýkur á miðnætti í kvöld en markmið söfnunarinnar náðist á níunda tímanum í kvöld. Stefnt var að því að safna 4,5 milljónum króna til að bæta aðgengi að sýningarsölum og salernum fyrir fólk í hjólastólum. Því markmiði er nú náð og gott betur.
Samkvæmt heimasíðu söfnunarinnar á Karolina Fund hafa safnast 33,654 evrur eða rétt rúmlega fimm milljónir króna.
Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdarstjóri Bíó Paradís, að söfnunin hafi tekið mikinn kipp í dag. „Við vorum komin með 50% í morgun og í gærmorgun rúmlega 30%. Síðasta sólarhringurinn hefur breytt öllu fyrir okkur en við vorum orðin vonlítil í gærmorgun,“ sagði Hrönn.
Bíó Paradís ákvað að hrinda þessari söfnun af stað þar sem aðgengismálin í bíóinu hafa að þeirra mati verið til skammar. „Við höfum látið taka húsnæðið út og það duga ekki ódýrar lausnir. Við þurfum meðal annars að setja lyftur og laga klósett og það er mun kostnaðarsamara en menningarstofnun í sjálfseignarrekstri ræður við.“
Hér má sjá söfnunina á Karolina Fund.
Fyrri frétt mbl.is:
„Það þurfa allir að leggjast á eitt“