Spá 22 stiga hita

Það verður ljómandi gott veður víðast hvar á landinu næstu …
Það verður ljómandi gott veður víðast hvar á landinu næstu daga. Skjáskot/Veðurstofan

Veðrið síðustu daga hefur verið milt og gott víðast hvar á landinu. Og nú er von á enn meiri hlýindum því frá föstudegi er spáð 14-22 stiga hita. Svalast verður fyrir austan.

Í dag spáir Veðurstofa Íslands 8 til 17 stiga hita. Hlýjast verður norðan- og vestanlands.

Sjá nánar á veðurvef mbl.is.

Spáin næstu daga er svo þessi:

Á fimmtudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en skýjað suðaustantil á landinu. Hiti 7 til 18 stig, svalast fyrir austan.

Á föstudag, laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 með S-ströndinni. Yfirleitt bjart veður um landið vestan- og norðanvert og hiti 14 til 22 stig.

Skýjað og úrkomulítið á Suðausturlandi og Austfjörðum og hiti 8 til 13 stig á þeim slóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert