Nú í kvöld kviknaði í bíl úti á Álftanesi og var slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað til að slökkva í honum. Þegar komið var á vettvang var búið að slá á eldinn og hann minnkað talsvert. Gekk því greiðlega að slökkva eldinn, en bíllinn er ónýtur.
Ekki er vitað hver eldsupptök voru, en lögreglan er með málið í skoðun.