Á 129 kílómetra hraða með bráðabirgðaskírteini

Sex voru teknir fyrir hraðakstur á Selfossi í dag. Sá sem hraðast ók var á 129 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Við þetta fékk ökumaðurinn tvo punkta og missti við það prófið. Hann mun því þurfa að sækja ökunámskeið að nýju vilji hann fá fullnaðarskírteini.

Að öðru leyti var dagurinn rólegur í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert