Fluttur alvarlega slasaður með þyrlu

Þyrla Landhelgisgæslunnar. Mynd úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Klukkan rúmlega 20:00 í kvöld var óskað aðstoðar lögreglu og sjúkraliðs vegna bílveltu á Suðurlandsvegi, skammt vestan við Kistufell í Vestur-Skaftafellssýslu. Einn maður var í bílnum og var hann fluttur með sjúkrabifreið til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík. Hann er talinn alvarlega slasaður.

Rannsókn málsins er í höndum lögreglu og Rannsóknarnefndar samgönguslysa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert