Auglýsa eftir óþekktum manni

Þekkir þú manninn?
Þekkir þú manninn? Ljósmynd/ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Þetta kemur fram á Facebook síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en þar er maðurinn vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gunnar.bachmann@lrh.is eða einkaskilaboðum Facebook síðu lögreglunnar.

Í færslu lögreglunnar segir að myndin gæti vissulega verið skýrari, en er birt í þeirri von að einhver þekki manninn engu að síður.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til ranns...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Thursday, July 2, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert