Matthildur með krafta í kögglum

Á Norðurlandamótinu tók Matthildur 110 kg í hnébeygju.
Á Norðurlandamótinu tók Matthildur 110 kg í hnébeygju. Ljósmynd/Sigurjón Pétursson

Ég var í fimleikum þegar ég var yngri, en svo meiddist ég á ökkla í fjallgöngu og þurfti að hætta. Mamma keypti þá kort fyrir mig í ræktina og þar kynntist ég þjálfaranum hennar mömmu, Ingimundi Björgvinssyni. Þetta var í mars í fyrra og ég fékk að fara á kraftlyftingaæfingu hjá honum og hann vildi að ég tæki þátt í Íslandsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum sem átti að vera sex mánuðum síðar á Akureyri. Ég var til í það og mætti þrisvar í viku á æfingar hjá honum klukkan sex á morgnana, fyrir skólatíma. Ég hafði aldrei lyft lóðum áður, en mér fannst þetta gaman,“ segir Matthildur Óskarsdóttir kraftlyftingakona, sem þá var 14 ára og varð Íslandsmeistari í sínum þyngdarflokki og setti tólf Íslandsmet.

Núna er Matthildur 15 ára og búin að taka þátt bæði í Norðurlandamóti og heimsmeistaramóti og raða inn metum.

„Þegar mér gekk svona vel á Akureyri vissi ég að þetta væri eitthvað fyrir mig og að ég vildi halda áfram. Næsta mót sem ég tók þátt í var í febrúar á þessu ári í Finnlandi. Þá var ég búin að æfa í ellefu mánuði og ég setti tvö Íslandsmet, fékk fyrsta sæti í bekkpressu, annað sæti í hnébeygju, þriðja sæti í réttstöðu og þriðja sæti samanlagt. Ég gerði það sem ég ætlaði mér en mér hefði getað gengið betur í réttstöðunni. Ég bætti það upp á heimsmeistaramótinu sem var núna í júní, í Finnlandi. Þar gekk mér rosalega vel og ég keppti í þyngdarflokkinum mínus 72 kíló. Ég vigtaðist léttust og yngst inn í flokkinn en ég bætti árangur minn; ég tók 120 kg í hnébeygju, 67,5 kg í bekkpressu og 125 kg í réttstöðu. Ég setti ellefu Íslandsmet á þessu heimsmeistaramóti og var mjög sátt og glöð að því loknu.“

Hefur dregið krakka með sér

Matthildur segist vera á mörkunum að eiga að vera í næsta flokki fyrir neðan, en hún vill frekar byggja sig upp og þyngjast í þeim flokki sem hún er í. „Fyrst var ég að æfa með stelpum sem voru eldri en ég og ég hef kynnst fjölmörgu fólki í kringum þessa íþrótt og það er mjög gaman. Ég á þrjú ár eftir í þeim aldursflokki sem ég keppi í núna, sem er 14 til 18 ára, en eftir það ætla ég mér að keppa í aldursflokknum 18 til 24 ára,“ segir Matthildur, sem er með mikið keppnisskap og stefnir á Norðurlandamót í Svíþjóð í byrjun næsta árs.

„Ég fer líka á Íslandsmeistaramótið á Akureyri núna í ágúst, en það er fyrst og fremst vegna þess að ég er búin að draga svo marga krakka í þetta með mér,“ segir hún og hlær. „Fimm ný eru að byrja í mínum aldursflokki og Ingimundur var með námskeið fyrir þau. Mér finnst frábært að vera ekki lengur alein, það er gaman að fá vini mína á mínum aldri inn.“

Uppsker eins og hún sáir

Matthildur segir að tæknin skipti miklu máli í íþróttinni, það sé ekki nóg að vera sterkur.

„Það er hætta á meiðslum ef maður beitir ekki réttri tækni, ég sá það hjá sterkum stelpum á heimsmeistaramótinu. Fólk endist ekki í þessari íþrótt ef það tileinkar sér ekki tæknina. Það skiptir máli að beita sér rétt, hvernig maður stendur og heldur um stöngina og að finna hvað hentar. Núna er ég til dæmis eingöngu að æfa tæknina, formið á lyftunum.“

Það sem henni finnst skemmtilegast við íþróttina er að sjá bætingar.

„Maður stefnir að einhverju og þegar maður uppsker eins og maður sáir, þá er gaman. Þegar ég fer í ferðalög þarf ég að plana að komast á æfingar fjórum sinnum í viku, því að ef ég missi viku úr finn ég það. Ég þarf líka að sofa vel og borða hollt.“

Gæti ekki tekið þátt án Ingimundar

Matthildur segir marga hafa verið hissa þegar hún byrjaði að æfa kraftlyftingar en að strákunum í árganginum hennar hafi fundist það frábært. „Þeir eru alltaf að spyrja hvað ég taki mörg kíló í hinu og þessu.“ Vissulega fylgir heilmikið álag því að fara á stór mót úti í heimi en Matthildur nýtur tryggs stuðnings fjölskyldu sinnar.

„Mamma fór með mér á heimsmeistaramótið og pabbi fór með mér á Norðurlandamótið. Auk þess fer Ingimundur alltaf með og líka landsliðsþjálfarinn Grétar. Það skiptir mig miklu máli að allir standi svona með mér. Ég gæti aldrei tekið þátt í svona móti án Ingimundar. Hann er besti þjálfari sem hægt er að finna.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert