Fjórir voru í nótt handteknir í höfuðborginni í tengslum við líkamsárásarmál. Að því er fram kemur í dagbók lögreglu er enginn alvarlega slasaður en málið er í rannsókn.
Þá var nokkuð um að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þyrfti í gærkvöldi og nótt að hafa afskipti af fólki sem grunað er um akstur bifreiða undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einnig var nokkuð um fíkniefnabrot og fann lögreglan mikið þýfi við húsleit í miðborginni.