Sólheimar fagna 85 ára afmæli

Sólheimar.
Sólheimar.

Á morgun, sunnudaginn 5, júlí, fagna Sólheimar 85 ára afmæli sínu, en þennan dag árið 1930 komu fyrstu börnin til Sólheima.

Í tilefni dagsins verður hátíðarguðþjónusta í Sólheimakirkju kl. 14, en kirkjan á einnig þennan sama dag 10 ára vígsluafmæli. Herra Karl Sigurbjörnsson biskup mun predika auk þess sem Sigrún Hjálmtýsdóttir mun syngja einsöng.

Formleg opnun verður á aðsetri félagsþjónustu og frístundastarfs í endurbyggðu húsi sem nefnt er Ægisbúið. Skóflustunga verður svo tekin að næstu „stóru” framkvæmd á Sólheimum, en það er viðbygging við kaffihús, þar sem verður verslun, listhús og félagsaðstaða.

Menningarveisla Sólheima er svo í fullum gangi með listsýningu, umhverfissýningu og sýningu til heiðurs 30 ára gönguafmæli Reynis Péturs.  

Það eru allir hjartanlega velkomnir á Sólheima á afmælisdaginn sem aðra daga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert