Gordon Ramsay veiddi lax á Íslandi

Tveir laxar á mynd.
Tveir laxar á mynd. Facebook.com/gordonramsey

Sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay dvaldi á Íslandi um helgina. Í gærkvöldi sást til hans í miðborg Reykjavíkur þar sem hann setti stefnuna rakleitt á skemmtistaðinn Loftið.

Ramsay gerði fleira en að njóta miðborgarinnar að kvöldlagi, en hann naut náttúru landsins og veiddi lax. Á Facebook-síðu sína skrifaði hann „This is why I love Iceland“ við mynd þar sem sjá má stórlaxinn með stóran lax. Ramsay gefur ekki upp hvar laxinn var veiddur en fróðir menn telja líklegt að hann hafi verið í Hvalfirði.

Ramsey er hrifinn af fegurð landsins.
Ramsey er hrifinn af fegurð landsins. Facebook.com/gordonramsey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert