Ísland brýst út í arkitektúrnum

Erla og Tryggvi.
Erla og Tryggvi.

Hjónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson eru búsett í Santa Monica í Los Angeles og reka þar saman sína eigin arkitektastofu, Minarc, en bæði eru þau arkitektar að mennt.

„Ég flutti út árið 1990 en Erla kom aðeins seinna, 1997,“ segir Tryggvi og bætir því við að þau hafi einmitt kynnst úti í Los Angeles. Árið 1999 voru þau síðan komin með sjálfstæða stofu. „Við búum úti og eigum þrjár dætur, níu, tólf og tuttugu ára gamlar,“ segir Erla. „Þær eyða hins vegar öllum stundum sem þær geta heima á Íslandi. Okkur finnst við ekki mega taka það af stelpunum að læra íslenskuna.“

Byggingartækni vandaðri hér

Þrátt fyrir að búa erlendis eru hjónin miklir Íslendingar í sér og voru stödd hérlendis þegar blaðamaður náði af þeim tali. „Við erum svo heppin að vera stödd á Vestfjörðum í dag, hér er heiðskírt og sumarveður. Við komum hingað til lands og njótum þess að vera á Íslandi og að vera Íslendingar,“ segir Tryggvi.

„Auðvitað er samt notalegt að búa í Los Angeles, ekki síst veðurlega séð. Og svo eru tækifærin þar náttúrlega mun stærri en hér heima. Ég myndi samt ekki orða það þannig að við viljum frekar vera úti en á Íslandi. Við fengum einfaldlega tækifæri og maður grípur auðvitað þau tækifæri sem koma til manns,“ bætir Tryggvi við.

Þótt gríðarlegur stærðarmunur sé á Los Angeles og Reykjavík segja hjónin það fjarri lagi að allt sé betra úti í hinum stóra heimi.

„Við veittum því t.d. athygli strax eftir að við komum út að húsin þar eru ekki jafn vel byggð og heima. Íslendingar eru vanir því að gera ráð fyrir veðri, vindum og jarðskjálftum við byggingu húsa. Það er eiginlega alltaf sól í Los Angeles, svo að byggingartæknin þar er ekki alveg jafnvönduð,“ segir Tryggvi.

Hann segir þó ýmislegt vera að breytast hratt í Bandaríkjunum. „Hugsunarhátturinn er að breytast og t.d. er sjálfbærni (e. sustainability) mikið að ryðja sér til rúms. Samfara því hefur byggingartæknin batnað, sem sést m.a. á því að farið er að einangra hús á svæðum þar sem veðrátta er mjög mild og jöfn, enda einangrun jafnnothæf til að halda hitanum úti og inni.

Sunnudagsblaðið
Sunnudagsblaðið
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert