Slasaður maður sóttur í skip

mbl.is/Hjörtur

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir stuttu til að sækja slasaðan mann í skip í Kjalarvogi. Skipið var við bryggju þegar maðurinn slasaðist, en hann er talinn fótbrotinn. 

Samkvæmt slökkviliðinu þarf að nota bæði körfubíl og dælubíl til að ná manninum upp úr lest skipsins og eru átta slökkviliðsmenn á staðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert