Bílvelta á Mikladalsvegi

Patreksfjörður
Patreksfjörður Sigurður Bogi Sævarsson

Enginn slasaðist er bifreið fór út af Mikladalsvegi, skammt frá Patreksfirði, um miðnætti í gær. Bifreiðin valt að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum en ekki þurfti aðstoð sjúkraflutningsmanna. 

Tveir voru í bifreiðinni en ekki er vitað hversu mikið bifreiðin skemmdist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert