DV og 365 brutu fjölmiðlalög

AFP

Fjölmiðlanefnd hefur birt tvær ákvarðanir vegna brota DV ehf. annars vegar og 365 miðla hf. hins vegar á ákvæðum laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Fjölmiðlanefnd komst að þeirri niðurstöðu í ákvörðun nr. 4/2015 að með útgáfu kynningarblaðsins Bjór þann 27. febrúar sl. hafi DV brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laganna um bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi. Taldi fjölmiðlanefnd hæfilegt að stjórnvaldssekt vegna brotsins næmi 750.000 kr.

Þá komst fjölmiðlanefnd að þeirri niðurstöðu í ákvörðun nr. 5/2015 að með útgáfu kynningarblaðsins Bjórmenning á Íslandi sem dreift var með Fréttablaðinu 21. mars sl. hafi 365 miðlar brotið gegn 1., 2. og 4. mgr. laganna um skyldu til aðgreiningar viðskiptaboða og ritstjórnarefnis, bann við duldum auglýsingum og bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi. Taldi fjölmiðlanefnd hæfilegt að stjórnvaldssekt vegna brotsins næmi 2.000.000 kr.

Báðar ákvarðanir hafa verið birtar á vef fjölmiðlanefndar.

Í fréttatilkynningu frá fjölmiðlanefnd segir að samkvæmt lögum um fjölmiðla verði að afmarka ritstjórnarefni og viðskiptaboð í fjölmiðlum með skýrum hætti og auðkenna viðskiptaboð sem slík. Tilgangur þessara reglna er að tryggja að notendur fjölmiðla viti hvort umfjöllun er keypt eða unnin af sjálfstæðri og faglegri ritstjórn. Fjölmiðlanefnd telur þörf á að árétta gildandi réttarreglur á þessu sviði og þýðingu þeirra fyrir fjölmiðla.

Dulin auglýsing í Íslandi í dag

Nefndin hefur einnig sent 365 miðlum erindi vegna frétta af duldri auglýsingu í sjónvarpsþættinum Ísland í dag á Stöð 2 þann 28. maí sl. Fjallað var um málið í Kjarnanum 7. júní og Stundinni 11. júní sl., þar sem haft var eftir auglýsinga- og mannauðsstjóra 365 miðla að mistök hefðu átt sér stað við efnisvinnslu og hafi hið kostaða efni af þeim sökum ekki verið auðkennt sem slíkt.

Í erindi fjölmiðlanefndar til 365 miðla segir að nefndin geri að svo stöddu ekki frekari athugasemdir við þá duldu auglýsingu á Stöð 2, sem hér hefur verið vísað til, þar sem fram hafi komið að mistök við efnisvinnslu hafi átt sér stað hjá 365 miðlum. Um leið ítrekar fjölmiðlanefnd að lögum samkvæmt eru dulin viðskiptaboð bönnuð og að 365 miðlum, sem og öðrum fjölmiðlum, ber að aðgreina viðskiptaboð og ritstjórnarefni með skýrum hætti. Þá eru óheimil viðskiptaboð og fjarkaup fyrir tóbaksvörur, áfengi, lyfseðilsskyld lyf og happdrættis- og veðmálastarfsemi, sem ekki hefur leyfi hér á landi.

Óheimilt er að kosta fréttir og fréttatengt efni

Í fréttatilkynningu fjölmiðlanefndar kemur einnig fram í apríl á þessu ári sendi nefnd erindi til hljóð- og myndmiðla þar sem óskað var eftir yfirliti miðlanna yfir þá þætti og dagskrárliði sem taldir væru til frétta og fréttatengds efnis. Um leið var athygli vakin á  því að samkvæmt lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 er óheimilt að kosta fréttir og fréttatengt efni.

Fjölmiðlanefnd vinnur nú að gerð leiðbeininga fyrir fjölmiðla um kostun og bann við duldum auglýsingum. Þar verður meðal annars fjallað um bann við kostun frétta og fréttatengds efnis og hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt svo að kostun hljóð- og myndefnis sé í samræmi við ákvæði laga um fjölmiðla. Leiðbeiningar þessar verða sendar fjölmiðlum til umsagnar á næstu vikum en verða að því búnu kynntar og birtar á vef fjölmiðlanefndar.

Ákvörðun fjölmiðlanefndar um 365

Ákvörðun fjölmiðlanefndar um DV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert