Ógnaði bílstjóra með hníf

Jim Smart

Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglu í Grafarvogi um tvöleytið í nótt eftir að hann hafði ekið pari þangað. Þegar átti að greiða ökugjaldið tók maðurinn upp hníf og ógnaði leigubílstjóranum og yfirgaf parið bifreiðina og fór inn í íbúðarblokk.   

Stuttu eftir að lögregla kom á vettvang kom maðurinn út aftur og var þá handtekinn. Maðurinn var færður á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert