Lögreglan handtók ungan mann í annarlegu ástandi í Bankastræti á fimmta tímanum í nótt. Gistir hann fangageymslu vegna ástands síns. Á honum fundust fíkniefni.
Um ellefuleytið var maður handtekinn grunaður um ræktun fíkniefna. Maðurinn gistir fangageymslu.
Afskipti voru höfð af manni á Laugavegi um kvöldmatarleytið vegna vörslu fíkniefna og á fimmta tímanum var akstur bifreiðar stöðvaður á Hlíðarvegi í Kópavogi vegna ölvunar ökumanns.
Klukkan hálffimm var bifreið stöðvuð á Hlíðarvegi. Ökumaðurinn grunaður um ölvun við akstur.