Innkalla sætt sinnep

Bónus sætt sinnep.
Bónus sætt sinnep. Mynd/Vogabær

Vogabær hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla „Bónus sætt sinnep 460 grömm“ þar sem ekki kemur fram á umbúðum vörunnar að hún inniheldur snefil af sellerí. Sellerí er einmitt ofnæmis- eða óþolsvaldur.

Í tilkynningu frá Vogabæ kemur fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem eru ekki með ofnæmi eða óþol fyrir sellerí. Eru neytendur sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol beðnir um að farga henni eða skila til Vogabæjar ehf gegn endurgreiðslu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka