Harður árekstur á Seltjarnarnesi

mbl.is/Hjörtur

Miklar tafir eru á umferð við Eiðistorg á Seltjarnarnesi vegna þriggja bíla áreksturs. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um harðan árekstur að ræða en ekki er talið að neinn sé alvarlega slasaður. Bæði sjúkraflutningamenn og lögregla eru á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert