Lítill hópur ökumanna er í mikilli lífshættu

Þótt öryggisbeltin hafi fyrir löngu sannað ágæti sitt og flestir ökumenn noti þau er sá litli hópur ökumanna sem ekki notar öryggisbelti  hlutfallslega sá vegfarendahópur sem er í mestri lífshættu. Þetta sýna slysatölur undanfarinna ára og rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að allt að helmingur þeirra sem látið hafa lífið í umferðinni á þessu ári  hefðu lifað hefðu þeir notað öryggisbelti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samgöngustofu í tilefni verslunarmannahelgarinnar.

Einn laus einstaklingur í bíl stofnar ekki bara eigin lífi í hættu heldur og þeirra sem eru með honum í bílnum og hafa í góðri trúa hafa spennt beltin. Við árekstur eða bílveltu kastast viðkomandi til í bílnum og höggþunginn getur orðið margföld þyngd hans. Sem dæmi má nefna að ef maður sem er 75 kg af þyngd lendir í árekstri á 70 km hraða án bílbelta verður höggþungi hans u.þ.b. 6 tonn.

Auk þess að nota öryggisbelti eru ökumenn og farþegar hvattir til að ganga tryggilega frá farangri þannig að ekki sé hætta á að hann kastist til og valdi líkamstjóni við árekstur.

Tryggingarfélögin eiga endurkröfurétt

Um það bil 20% allra banaslysa í umferðinni eru af völdum þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis og er þá ekki meðtaldir aðrir vímugjafar. Oft eru áhrifin ekki mikil en afleiðingarnar hinsvegar mjög alvarlegar.

Í  flestum tilfellum eiga tryggingarfélög endurkröfurétt á ökumann sem valdur er að slysi vegna ölvunar eða neyslu annarra vímuefna og ef ökumaður sem er undir áhrifum vímuefna verður valdur að dauða einhvers er litið á það sem manndráp af gáleysi.

Það er mikilvægt að vinir og aðstandendur ökumanns sem hyggst aka undir áhrifum vímuefna reyni að koma í veg fyrir það. Ef það tekst ekki með góðum ráðum skal hringja í 112 og koma með því í veg fyrir að viðkomandi verði valdur að alvarlegu slysi. Það vandamál sem hugsanlega kann að skapast af því að hringt er í lögreglu er lítilvægt borið saman við mögulegar afleiðingarnar ölvunaraksturs.

Hafa skal í huga að áfengi er lengi að fara úr líkamanum og í sumum tilfellum getur þurft að bíða í 14 - 18 klukkustundir áður en áfengi er farið úr blóðinu, segir í tilkynningu Samgöngustofu.

Um það bil 20% allra banaslysa í umferðinni eru af …
Um það bil 20% allra banaslysa í umferðinni eru af völdum þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert