Allt stopp á Selfossi

Hér neyðast menn til að sýna þolinmæði.
Hér neyðast menn til að sýna þolinmæði. mbl.is/Árni Sæberg

Mjög þung umferð er nú á Suðurlandi og þá einkum innan marka Selfoss. Lögreglumaður á Suðurlandi, sem mbl.is ræddi við, segir ökumenn verða að sýna biðlund.

Vegfarandi sendi mbl.is ljósmynd sem tekin var á Selfossi. Á henni sést meðal annars hversu þung umferðin þar er, en þar hreyfast ökutækin löturhægt enda bíll við bíl. Hafa vegna þessa langar raðir myndast.

„Það er mjög þung umferð hér í gegn,“ segir lögreglumaðurinn í samtali við mbl.is. „Þetta er dæmigerð umferð fyrir verslunarmannahelgi og þá verða ökumenn að sýna þolinmæði.“

Aðspurð segir hann engin slys hafa orðið í umferðinni það sem af er degi og fylgjast lögreglumenn grannt með ökumönnum.

Frétt mbl.is:

Færðu blá ljós á eftir þér?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert