Búið að bera unglingsstúlkuna niður

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert

Búið er að bera unglingsstúlkuna, sem slasaðist á Síldarmannagötum í Hvalfirði síðdegis í dag, niður. Hún er komin í sjúkrabíl og er á leið á sjúkrahús.

Björg­un­ar­sveit­ir slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar á sunn­an­verðu Vest­ur­landi voru kallaðar út á sjötta tímanum í dag. Stúlkan hafði fallið og hlotið áverka á fæti, en hún var ekki fær um gang.

Hún var í 1,5 kíló­metra fjar­lægð frá veg­in­um og þurftu björgunarmenn meðal annars að bera hana niður allbretta fjallshlíð.

Frétt mbl.is: Slasaðist á Síldarmannagötum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert