Hópslagsmál við Seljakirkju

Seljakirkja.
Seljakirkja. mbl.is/Jim Smart

Lögreglunni barst tilkynning um hópslagsmál við Seljakirkju í Breiðholti rétt eftir klukkan þrjú í dag. Þar tókust menn á, án þess þó að skaði hafi hlotist af, að sögn lögreglunnar.

Hins vegar voru nokkrir kærðir fyrir vopnaburð og fíkniefnavörslu. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um málið.

Þá var tilkynnt um þjófnað í verslun í austurbæ Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan þrjú í dag. Að öðru leyti hefur dagurinn verið fremur rólegur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert