Jóhann Fannar í essinu sínu á tvíslánni - myndband

Jóhann Fannar.
Jóhann Fannar. Styrmir Kári

Fimleikakappinn Jóhann Fannar Kristjánsson var í essinu sínu á tvíslánni á Special Olympics í dag. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi gekk æfingin mjög vel hjá Jóhanni, og ekki spillir fagnið í lokin fyrir. 

Leikunum, sem haldnir eru í Los Angeles, lýkur á morgun. Nokkuð stór hópur keppenda og þjálfara frá Íslandi er á leikunum.

Myndband af æfingu Jóhanns Fannars á tvíslá í dag. Ekki nóg með að æfingin væri vel framkvæmd heldur átti hann salinn er hann tók fagnið sitt í lokin - vert að horfa á

Posted by Íþróttasamband fatlaðra on Saturday, August 1, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert